Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 15. febrúar 2017 07:00
Þorsteinn Haukur Harðarson
Neuer: Guardiola hefur ekki hringt
Neuer og Guardiola á góðri stundu.
Neuer og Guardiola á góðri stundu.
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer. markvörður þýska liðsins, Bayern Munich, segir ekkert til í sögusögnum þess efnis að hann sé á leið til enska liðsins Manchester City.

Fyrrum þjálfari Bayern, Pep Guardiola, er tekinn við hjá Man. City og fóru fréttir af stað um að hann ætlaði að fá markvörðinn með sér yfir.

„Ég er ánægður hjá Bayern og mér líður vel hér. Svo var ég líka að skrifa undir nýjan samning við liðið," sagði Neuer á blaðamannafundi í gær og bætti við.

„Það er sjálfsagt að þið skrifið þetta en sannleikurinn er sá að þó að hann (Guardiola) sé með símanúmerið mitt hefur hann ekki hringt."
Athugasemdir
banner