Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. febrúar 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Rooney, Carrick og Jones æfðu ekki í dag
Michael Carrick.
Michael Carrick.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, Michael Carrick og Phil Jones æfðu ekki með Manchester United í dag fyrir leik liðsins gegn St. Etienne í Evrópudeildinni á morgun.

Jones hefur verið frá keppni vegna meiðsla á fæti síðan í leiknum gegn Hull á dögunum en bæði Rooney og Carrick voru á bekknum í 2-0 sigrinum á Watford um helgina.

Marcos Rojo var ekki með gegn Watford en hann æfði í dag og getur spilað gegn St. Etienne á morgun.

Útlit er hins vegar fyrir að Rooney, Carrick og Jones verði allir fjarri góðu gamni.

Leikurinn á morgun fer fram á Old Trafford en um er að ræða fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner