Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. febrúar 2017 15:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Zlatan Ibrahimovic: Martial er algjör fagmaður
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic leikmaður Manchester United hrósar liðsfélaga sínum Anthony Martial fyrir mikla vinnusemi til að reyna tryggja sér aftur fast sæti í byrjunarliði liðsins.

„Þegar hann spilar, þá spilar hann vel. Hann er ekki þessi týpa sem talar mikið, hann er hljóðlátur og algjör fagmaður. Hann reynir alltaf að gera sitt besta, hann æfir mikið og það borgar sig, eins og við sáum í síðasta leik," sagði Zlatan.

„Hann gefst ekki upp, hann leggur mikið á sig og hann kemur með góða orku inn í liðið og hann vill spila sem er eðlilegt."

Martial sem hefur byrjað 10 af 25 leikjum Manchester United í ensku úrvalsdeildinni var í byrjunarliði United um helgina og átti stóran þátt í 2-0 sigri liðsins á Watford með því að skora og leggja upp mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner