Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. febrúar 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Fjórði strákurinn bætist við Rooney fjölskylduna
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Coleen Rooney og Wayne Rooney eru búin að eignast sitt fjórða barn en Coleen greindi frá þessu á Twitter í dag.

Um er að ræða strák sem hefur fengið nafnið Cass Mac Rooney.

Fyrir eiga hjónin þrjá aðra stráka, Kai (8 ára), Klay (4 ára) og Kit (2 ára).

Wayne Rooney var gripinn ölvaður undir stýri í september síðastliðnum en með honum í bíl var önnur kona.

Í kjölfarið hékk samband Coleen og Wayne á bláþræði en Coleen tók meðal annars giftingarhringinn af sér um tíma. Sambandið virðist hins vegar vera orðið betra á nýjan leik samkvæmt fréttum frá Englandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner