Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 15. febrúar 2018 09:10
Magnús Már Einarsson
Heimslistinn: Ísland aldrei verið jafn ofarlega
Icelandair
Í 18. sæti!
Í 18. sæti!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatar eru í 15. sæti.
Króatar eru í 15. sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er í 18. sæti á nýjum heimslista FIFA sem var kynntur í dag. Ísland hoppar upp um tvö sæti frá því í janúar og hefur aldrei í sögunni verið jafn ofarlega á heimslistanum!

Fyrra met Íslands á listanum var 19. sæti í fyrra. Engir landsleikir hafa verið undanfarnar vikur en í útreikningum á listanum núna þurrkast út úrslit fyrir nokkrum árum. Því hoppar Ísland upp um tvö sæti.

Ísland fer upp fyrir Sviþjóð og Wales á listanum. Ísland er núna í öðru sæti yfir Norðurlandaþjóðir en Danir eru í 12. sæti listans.

Af liðunum sem Ísland mætir á HM í sumar er Argentína í 4. sæti listans, Króatía er í 15. sæti og Nígería í 52. sæti.

Í næsta mánuði leikur Ísland vináttuleiki við Mexíkó (17. sæti) og Perú (11. sæti) en báðir leikirnir fara fram í Bandaríkjunum.

Heimslisti FIFA
1. Þýskaland
2. Brasilía
3. Portúgal
4. Argentína
5. Belgía
6. Spánn
7. Pólland
8. Sviss
9. Frakkland
10. Síle
11. Perú
12. Danmörk
13. Kólumbía
14. Ítalía
15. Króatía
16. England
17. Mexíkó
18. Ísland
19. Svíþjóð
20. Wales
21. Holland
22. Úrúgvæ
23. Túnis
24. Bandaríkin
25. Kosta Ríka
26. Norður-Írland
27. Senegal
28. Slóvakía
29. Austurríki
30. Paragvæ

Athugasemdir
banner