Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. febrúar 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Viðureigninni er ekki lokið
Klopp var sáttur með sigurinn.
Klopp var sáttur með sigurinn.
Mynd: Getty Images
Þrátt fyrir 5-0 útisigur gegn Porto í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þá er Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ekki byrjaður að fagna.

Klopp segir að viðureigninni sé ekki lokið þrátt fyrir mjög gott forskot.

„Nei auðvitað ekki. Af hverju ætti ég að segja það?" sagði Klopp aðspurður hvort að viðureigninni sé lokið.

„Við komum hingað til að ná í forskot fyrir síðari leikinn á Anfield og það er það sem við gerðum. Ekkert meira og ekkert minna."

„Eins og ég hef nokkrum sinnum sagt þá hef ég verið of lengi í þessum bransa til að halda að eitthvað sé klárt fyrir lokaflautið. Við skuldum stuðningsmönnum okkar á Anfield 100% frammistöðu og við viljum ná því fram."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner