15.03.15 - 16:58
Magnús Már Einarsson
Lengjubikarinn: ÍBV burstaði BÍ/Bolungarvík

Glenn skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glenn skoraði þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 5 - 0 BÍ/Bolungarvík
1-0 Jonathan Glenn
2-0 Bjarni Gunnarsson
3-0 Jonathan Glenn
4-0 Ian Jeffs
5-0 Jonathan Glenn (Víti)
1-0 Jonathan Glenn
2-0 Bjarni Gunnarsson
3-0 Jonathan Glenn
4-0 Ian Jeffs
5-0 Jonathan Glenn (Víti)
ÍBV burstaði BÍ/Bolungarvík 5-0 í Lengjubikarnum í dag en leikið var í Egilshöllinni.
Jonathan Glenn skoraði þrennu fyrir ÍBV en hann var næstmarkahæstur í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili. Þriðja mark Glenn kom úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.
Þetta var fyrsti sigur Eyjamanna í Lengjubikarnum en liðinu verður þó einnig dæmdur sigur gegn Breiðabliki þar sem Kristinn Jónsson fékk rauða spjaldið.
BÍ/Bolungarvík er án stiga eftir fimm leiki en skástrikið hefur ekki ennþá skorað mark í Lengjubikarnum.

Heimild: Twitter - Tómas Þór