Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. mars 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór skoraði eitt og lagði upp tvö
Arnór í unglingalandsleik.
Arnór í unglingalandsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sigurðsson átti frábæran leik með U21 liði Norrköping síðastliðið þriðjudagskvöld.

Arnór, sem er 18 ára að aldri, hefur verið að standa sig vel í Svíþjóð og hefur verið viðloðandi aðalliðshópinn hjá Norrköping.

Á þriðjudaginn spilaði hann með U21 liðinu gegn Djurgarden og gerði hann sér lítið fyrir og skoraði eitt af fimm mörkum liðsins í 5-1 sigri. Auk þess lagði hann upp tvö mörk.

Alfons Sampsted og Guðmundur Þórarinsson spiluðu líka leikinn en U21 liðið er líka skipað eldri leikmönnum sem spiluðu ekki síðasta leik aðalliðsins.

Jón Guðni Fjóluson er líka á mála hjá Norrköping sem er mikið Íslendingalið.



Athugasemdir
banner
banner
banner