Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. mars 2018 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin: Atletico valtaði yfir Lokomotiv í Moskvu
Mynd: Getty Images
Lokomotiv 1 - 5 Atletico Madrid (1-8 samanlagt)
0-1 Angel Correa ('16)
1-1 Maciej Rybus ('20)
1-2 Saul Niguez ('47)
1-3 Fernando Torres ('65, víti)
1-4 Fernando Torres ('70)
1-5 Antoine Griezmann ('85)

Atletico Madrid lenti ekki í vandræðum á útivelli gegn Lokomotiv í Moskvu er liðin mættust í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Angel Correa kom gestunum yfir snemma leiks og jafnaði Maciej Rybus skömmu síðar. Staðan var jöfn í hálfleik.

Spánverjarnir tóku öll völd í síðari hálfleik og kom Saul Niguez sínum mönnum aftur yfir skömmu eftir leikhlé.

Fernando Torres skoraði tvö á fimm mínútum og Antoine Griezmann, sem kom af bekknum, gerði síðasta markið á lokakaflanum.

Atletico vann fyrri leikinn 3-0 heima og lokatölur því 8-1 í viðureigninni.
Athugasemdir
banner
banner