Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 15. mars 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Iniesta gæti samið í Kína - Ákveður sig fyrir maí
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta, fyrirliði Barcelona, segist vera að íhuga að semja við félag í Kína.

Hinn 33 ára gamli Iniesta hefur spilað allan sinn feril með Barcelona en hann gæti skipt um vettvang eftir tímabilið.

„Fyrir 30. apríl þarf ég að taka ákvörðun um það hvort ég verði áfram hjá Barcelona eða hvort ég fari til Kína. Ég þarf að skoða hvað er best fyrir mig og félagið," sagði Iniesta við fjölmiðla eftir 3-0 sigur Barcelona á Chelsea í gærkvöldi.

„Þetta er ákvörðun sem ég mun ræða við félagið fyrst og síðan komist þið að þessu."

„Ég tek ákvörðun fyrir 30. apríl. Ég tek hreinskilna ákvörðun fyrir mig og félagið."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner