Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 15. mars 2018 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Lucas Leiva: Getum farið alla leið
Mynd: Getty Images
Lazio komst áfram í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-0 útisigur gegn Dynamo Kiev er liðin mættust í Úkraínu í kvöld.

Lazio vann sannfærandi sigur og hitti ekki eitt einasta skot heimamanna markrammann.

Búist var við jafnari leik eftir 2-2 jafntefli í Róm en Lazio mætti með sitt sterkasta lið í dag og er Lucas Leiva, fyrrverandi miðjumaður Liverpool, stoltur af samherjunum.

„Ég er ánægður með markið sem ég skoraði, það er mikilvægt að það hafi hjálpað liðinu," sagði Lucas við Sky Sport Italia.

„Við ætlum að fara alla leið, við höfum fulla trú á okkur eftir þennan sigur. Við vitum að það eru sterk lið í keppninni, við erum eitt þeirra.

„Við ætlum ekki að setja okkur nein takmörk, við ætlum alla leið."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner