Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 15. mars 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Sergine Fall í Vestra (Staðfest)
Samúel Samúelsson og Sergine Modou Fall við undirskrift.
Samúel Samúelsson og Sergine Modou Fall við undirskrift.
Mynd: Vestri
Vestri hefur fengið kantmanninn Sergine Modou Fall til liðs við sig frá ÍR fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.

Fall spilaði með Vestra 2015 og fyrri hluta sumars 2016 áður en hann gekk í raðir ÍR.

Á síðasta tímabili skoraði Fall fjögur mörk í 21 leik í Inkasso-deildinni með ÍR.

„Við bjóðum Fall velkominn til baka og hlökkum til að sjá hann spila í sumar með liðinu," segir á heimasíðu Vestra.

Fall er annar leikmaðurinn sem Vestri fær í sínar raðir í vikunni en í fyrradag kom spænski framherjinn Javier Lopez Munoz til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner