Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 15. mars 2018 22:28
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu dýfu Danny Welbeck gegn Milan
Mynd: Getty Images
Danny Welbeck átti magnaðan leik í 3-1 sigri Arsenal gegn AC Milan í Evrópudeildinni fyrr í kvöld.

Milan komst yfir í fyrri hálfleik og var Welbeck ekki lengi að fiska vítaspyrnu og jafna metin.

Dómarinn var viss að um brot væri að ræða, en endursýningar sýna að þetta var augljós dýfa hjá Welbeck.

Dýfuna er hægt að sjá hér og eru nokkrir af helstu knattspyrnusérfræðingum enska boltans búnir að tjá sig um atvikið.

Leikmenn Arsenal voru spurður út í dýfuna að leikslokum en sögðust ekki hafa séð hana. Arsene Wenger, sem hefur verið meðal þeirra allra hörðustu að gagnrýna Dele Alli og aðra leikmenn fyrir dýfur, ætlar ekki að tjá sig um málið fyrr en hann sér endursýningu.



Athugasemdir
banner
banner
banner