Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. mars 2018 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Uppalinn Leedsari til Eyja (Staðfest)
Mynd: Harrogate Town AFC
Miðjumaðurinn ungi Henry Rollinson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ÍBV.

Henry er 20 ára gamall og alinn upp hjá Leeds. Hann fékk mikið lof fyrir spilamennsku sína upp yngri flokkana og hefur leikið fyrir U23 liðið.

Henry fór til Eyja á reynslu um miðjan febrúar og var ákveðið að semja við hann.

Henry lék fyrir lið í Ástralíu í fyrra og er annar Englendingurinn sem gengur til liðs við félagið eftir að samið var við Priestley Griffiths í febrúar.

ÍBV endaði í 9. sæti í Pepsi-deildinni í fyrra og varð bikarmeistari en það tryggði liðinu þátttökurétt í Evrópudeildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner