Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 15. apríl 2014 20:59
Alexander Freyr Tamimi
Allardyce: Gáfum þeim tvö mörk
Sam Allardyce.
Sam Allardyce.
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce, stjóri West Ham, segir að lélegur varnarleikur sinna manna hafi orðið til þess að Arsenal vann 3-1 sigur í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

West Ham komst í 1-0, en Arsenal kom til baka og skoraði þrjú mörk.

,,Við gerðum tvö mistök í fyrstu tveimur mörkunum þeirra. Við höfðum lagt hart að okkur til að komast í 1-0 og við börðumst allan leikinn," sagði Allardyce.

,,En jafnvel þó við séum að spila svona vel, þá er erfitt að ná úrslitum ef við gefum þeim tvö mörk."

,,Í seinni hálfleik skoruðu þeir eftir langan bolta og vörnin okkar var skammarleg. Það er ekkert ásættanlegt við að spila ágætlega, því fótbolti snýst um að vinna og ná úrslitum. Við gerðum það ekki í kvöld og öll okkar vinna var til einskis."

Athugasemdir
banner
banner