Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 13:30
Elvar Geir Magnússon
Barinn í döðlur af liðsfélaga sínum
Mynd af síðum The Sun.
Mynd af síðum The Sun.
Mynd: The Sun
Á hverjum degi gerist það á fótboltaæfingum allstaðar í heiminum að mönnum lendir saman. Sem betur fer er það í flestum tilfellum stundarbrjálæði og allir orðnir vinir á ný að lokinni æfingu.

Fyrirliði Port Vale, Doug Loft, var þó laminn illilega á æfingu í síðustu viku en fjallað er um málið í enskum fjölmiðlum.

Loft endaði á sjúkrahúsi með brotið nef, kjálkabrot og miklar bólgur í andliti eftir að hafa lent í ofbeldisfullum liðsfélaga.

Árásarmaðurinn heitir Daniel Jones og hefur hann verið sendur í frí frá æfingum meðan næstu skref verða ákveðin.

Port Vale leikur í ensku C-deildinni.
Athugasemdir
banner