Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 13:15
Magnús Már Einarsson
Diego Simeone: Torres vill koma til Atletico
Fernando Torres.
Fernando Torres.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að Fernando Torres hafi áhuga á að ganga aftur til liðs við sitt gamla félag.

Torres hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom til Chelsea í janúar 2011 en hann hefur verið orðaður við endurkomu til Atletico Madrid.

,,Fernando er alltaf með okkur. Auðvitað hef ég sent honum skilaboð," sagði Simeone.

,,Hann er mjög ánægður með það sem er í gangi hjá liðinu og hann hefur óskað okkur góðs gengis."

,,Auðvitað myndi hann gjarnan vilja koma aftur til félagsins þar sem hann ólst upp og þar sem hann er mjög ánægður."

Athugasemdir
banner
banner