Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England - Leikur dagsins: Arsenal fær West Ham í heimsókn
Arsenal þarf að snúa aftur á sigurbraut til að berjast um meistaradeildarsæti
Arsenal þarf að snúa aftur á sigurbraut til að berjast um meistaradeildarsæti
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur á dagskrá í enska boltanum í kvöld þar sem Arsenal fær West Ham í heimsókn á Emirates leikvanginn.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og er gríðarlega mikilvægur fyrir heimamenn.

West Ham siglir lygnan sjó sjö stigum og sjö sætum frá fallsvæðinu á meðan Arsenal er tveimur stigum eftir Everton í meistaradeildarbaráttunni.

Arsenal vann Wigan í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum enska FA bikarsins á laugardaginn en West Ham er búið að hvíla í rúma viku.

Leikur kvöldsins:
18:45 Arsenal - West Ham
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner