Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. apríl 2014 05:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Spilað í C-deild Lengjubikarsins
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Það eru fjórir leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag og eru þrír þeirra í C-deild karla og einn í C-deild kvenna.

Mikil toppbarátta er í gangi í riðli 4 þar sem Hvíti riddarinn getur, með stigi, tryggt sér annað sæti riðilsins.

Í riðli 5 þarf Skínandi aðeins eitt stig úr leik gegn Stokkseyri til að tryggja sér toppsætið.

Í C-deild kvenna er aðeins einn leikur á dagskrá þar sem Haukar geta unnið þriðja leikinn í röð á meðan Grindvíkingar eru á botni riðilsins með eitt stig.

C-deild karla riðill 4:
18:00 Vatnaliljur - Augnablik (Kórinn - Gervigras)
20:00 Mídas - Hvíti riddarinn (Framvöllur - Úlfarsárdal)

C-deild karla riðill 5:
19:00 Stokkseyri - Skínandi (Selfossvöllur)

C-deild kvenna riðill 2:
18:00 Haukar - Grindavík (Schenkervöllurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner