Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Leikur dagsins: Dortmund í undanúrslitum
Síðasta tækifæri Dortmund til að næla sér í stóran titil á tímabilinu
Síðasta tækifæri Dortmund til að næla sér í stóran titil á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur á dagskrá hjá bestu liðum Þýskalands í dag þar sem Borussia Dortmund mætir Wolfsburg í undanúrslitum þýska bikarsins.

Bæði lið unnu leikina sína í deildinni um helgina þar sem Dortmund lagði nýkrýnda meistara Bayern af velli með þremur mörkum gegn engu á Allianz Arena, heimavelli Bæjara.

Dortmund er í öðru sæti þýsku deildarinnar en Wolfsburg er í evrópubaráttunni í fimmta sæti.

Bayern München mætir Kaiserslautern í hinum undanúrslitaleiknum á miðvikudaginn.

Leikur dagsins:
18:30 Borussia Dortmund - Wolfsburg
Athugasemdir
banner
banner