Heimild: ISF
Loic Remy, sóknarmaður QPR á láni hjá Newcastle, ætlar að yfirgefa QPR í sumar og vill helst fara til liðs sem spilar í Meistaradeild Evrópu.
Talið er að mörg lið hafi áhuga á sóknarmanninum þar sem Atletico Madrid er líklegast til að krækja í Frakkann.
Talið er að mörg lið hafi áhuga á sóknarmanninum þar sem Atletico Madrid er líklegast til að krækja í Frakkann.
Paris Saint-Germain, Arsenal og Tottenham hafa einnig verið orðuð við Remy sem er falur fyrir 10 milljónir punda.
,,Það eru nokkur félög í viðræðum við umboðsmanninn minn, ég er opinn fyrir öllu," sagði Remy.
,,Ég vil fara í frábært evrópskt lið. Ég vil spila í Meistaradeildinni, ég vil spila gegn þeim bestu.
,,Það er allt mögulegt í framtíðinni, ég gæti þess vegna farið aftur til Frakklands. Ég hef spilað fyrir frábær félög þar eins og Lyon og Marseille."
Athugasemdir