Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 15. apríl 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo ekki með í úrslitaleiknum gegn Barcelona
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, ætlar ekki að taka neina áhættu með Cristiano Ronaldo í úrslitaleik spænska konungsbikarsins gegn Barcelona annað kvöld.

Ronaldo hefur misst af síðustu þremur leikjum Real Madrid vegna meiðsla og hann verður ekki klár í slaginn fyrir leikinn á morgun.

,,Við munum ekki taka áhættu með Cristiano og hann spilar þess vegna ekki," sagði Ancelotti.

,,Hann mun æfa á morgun og ferðast til Valencia til að horfa á úrslitaleikinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner