Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. apríl 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: BBC 
Tony Pulis vill fá Tom Ince í sumar
Tom Ince verður samningslaus í sumar
Tom Ince verður samningslaus í sumar
Mynd: Getty Images
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Crystal Palace, hefur ekki notað Tom Ince sérlega mikið frá komu hans til liðsins á láni frá Blackpool í janúar.

Ince, sem er 22 ára, er búinn að byrja fjóra leiki frá komu sinni en Pulis segist vilja halda honum innan félagsins.

,,Ég væri til í að setjast niður og gera eitthvað með honum því ég tel hann vera toppleikmann," sagði Pulis.

,,Hann er einhver sem við munum skoða eftir tímabilið. Tom hefur verið gjörsamlega frábær og verður án vafa frábær úrvalsdeildarleikmaður.

,,Hann hefur þá hæfileika sem þarf og meira."

Athugasemdir
banner
banner
banner