Daniel Storey hjá Football365 tók saman topp tíu lista yfir sóknarmenn sem gætu verið á innkaupalistum þeirra liða sem eru í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar. Mörg lið á Englandi vilja bæta við sig sóknarmönnum í sumar.
10) Falcao (Manchester City) - Það gæti verið erfitt að losa þennan eftir að hafa verið keyptur fyrir risaupphæð til Monaco fyrir ári. En Manchester City gæti gert tilraun vegna meiðsla Aguero og versnandi frammistöðu Negredo.
9) Alexandre Lacazette (Newcastle) - Newcastle virðist vera að missa Loic Remy og þá þarf félagið nauðsynlega á sóknarmanni að halda. Þessi 22 ára leikmaður Lyon virðist smellpassa enda franskur!
8) Javier Hernandez (Arsenal) - Virðist vera orðinn þreyttur á bekkjarsetunni á Old Trafford og Arsene Wenger þarf á markaskorara að halda.
7) Mario Balotelli (Chelsea) - Hefur ekki náð að festa niður rótum hjá AC Milan. Það yrði óneitanlega stórkostlegt að fá Balotelli aftur í enska boltann.
6) Loic Remy (Spurs) - Er hjá Newcastle á láni hjá QPR. Ef QPR kemst ekki upp verður hann ekki þar. Tottenham og Arsenal eru ekki ólíklegir áfangastaðir.
5) Romelu Lukaku (Everton) - Lukaku virðist ekki í áætlunum Mourinho. Samband hans og Roberto Martinez er öllu betra.
4) Danny Ings (Liverpool) - 21 árs gamall. Hefur verið frábær með Burnley í Championship og gæti verið fullkominn varamaður fyrir Daniel Sturridge og Luis Suarez.
3) Edinson Cavani (Manchester United) - Það yrði sterkt fyrir Louis van Gaal að gefa skýr skilaboð með því að krækja í Cavani um leið og hann verður ráðinn! Leikmaðurinn er örugglega orðinn pirraður að vera færður til á vellinum fyrir Zlatan.
2) Mario Mandzukic (Arsenal) - Markahrókur Bayern München gæti verið á förum í sumar þegar Robert Lewandowski mætir.
Athugasemdir