Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. apríl 2014 13:51
Elvar Geir Magnússon
Tveir þjálfarar Aston Villa sendir í leyfi
Ian Culverhouse, aðstoðarmaður Lambert.
Ian Culverhouse, aðstoðarmaður Lambert.
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur sent tvo þjálfara aðalliðsins í leyfi frá störfum vegna innanbúðarrannsóknar. Ekki hefur verið greint frá því hvað þjálfararnir tveir eru grunaðir um.

Ian Culverhouse og Gary Karsa eru umræddir menn en Gordon Cowans og Shay Given munu fylla þeirra skörð tímabundið.

Paul Lambert, stjóri Aston Villa, segist ánægður með að fá Cowans og Given til að aðstoða sig fyrir leik gegn Southampton á laugardaginn. Hann segir að öll einbeiting hópsins sé á þeim leik.

Aston Villa er í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner