Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. apríl 2018 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benitez: Stórt fyrir leikmennina, borgina og stuðningsmennina
Newcastle svo gott sem öruggt með sæti sitt í deildinni
Rafa Benitez er búinn að gera frábært mót með Newcastle.
Rafa Benitez er búinn að gera frábært mót með Newcastle.
Mynd: Getty Images
„Ég held að við séum öruggir með 41 stig," sagði Rafa Benitez, stjóri Newcastle eftir 2-1 sigur á Arsenal í dag.

Þetta er fjórði deildarsigur Newcastle í röð og er liðið svo gott sem öruggt með sæti sitt, í tíunda sæti með 41 stig.

„Þetta er stórt afrek fyrir leikmennina, borgina og stuðningsmennina. Ég vil óska öllum til hamingju."

„Í dag spiluðum við ekki magnaðan fótbolta vegna þess að við vorum að spila við magnað lið. Ef þú ætlar að vinna lið eins og Arsenal þá verðurðu að leggja meira á þig en venjulega."

„Við megum njóta sigursins en svo verðum við að vera tilbúnir í næsta leik," sagði Benitez.
Athugasemdir
banner
banner