Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 15. apríl 2018 21:00
Gunnar Logi Gylfason
Frakkland: PSG endurheimtir Frakklandsmeistaratitilinn (Staðfest) - Niðurlæging Mónakó algjör
Leikmenn PSG hafa endurheimt Frakklandsmeistaratitilinn
Leikmenn PSG hafa endurheimt Frakklandsmeistaratitilinn
Mynd: Getty Images
Mitroglou skoraði fyrir Marseille
Mitroglou skoraði fyrir Marseille
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain tók á móti fráfarandi Frakklandsmeisturum í frönsku úrvalsdeildinni í dag.

Giovani Lo Celso skoraði fyrsta mark leiksins á 14.mínútu. Cavani tvöfaldaði forystuna þremur mínútum síðar og partýið rétt að byrja.

Þremur mínútum eftir mark Cavani þá kom Angel Di Maria PSG í 3-0. Giovani Lo Celso skoraði sitt annað mark á 28.mínútu og heimamenn því komnir í 4-0.

Mónakó minnkaði muninn á 38. mínútu og staðan 4-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Fjörið var minna í seinni hálfleik en Di Maria bætti við sínu öðru marki á 58. mínútu og breytti stöðunni í 5-1.

Radamel Falcao, framherji Mónakó, skoraði svo í vitlaust mark á 76. mínútu áður en Julian Draxler skoraði sjöunda mark heimamanna og leikmenn Monaco gjörsamlega niðurlægðir.

Með þessum sigri endurheimtir PSG Frakklandsmeistaratitilinn en fráfarandi meistarar vilja líklega gleyma þessum leik sem fyrst.

Í hinum leikjum dagsins í frönsku úrvalsdeildinni vann Bordeaux nokkuð öruggan 1-3 útisigur á Montpellier.

Bæði lið eiga möguleika á að ná Evrópudeildarsæti fyrir komandi leiktíð.

Þá lenti Marseille í vandræðum með Troyes, sem situr í næst neðsta sæti, á útivelli.

Heimamenn komust tvisvar yfir en Marseille jafnaði í bæði skiptin og skoraði svo sigurmark á 85. mínútu og tryggði sér þar með sigur.

Troyes er aðeins einu stigi frá öruggu sæti en Marseille getur enn náð 2.sæti deildarinnar.

PSG 7-1 Mónakó
1-0 Giovani Lo Celso (14')
2-0 Edinson Cavani (17')
3-0 Angel Di Maria (20')
4-0 Giovani Lo Celso (28')
4-1 Rony Lopes (38')
5-1 Angel Di Maria (58')
6-1 Radamel Falcao (sjálfsmark) (76')
7-1 Julian Draxler (86')

Montpellier 1-3 Bordeaux
0-1 Martin Braithwaite (9')
0-2 Francois Kamano (49')
0-3 Soualiho Meite (78')
1-3 Ellyes Skhiri (88')
1-3 Souleymane Camara, misnotað víti

Troyes 2-3 Marseille
1-0 Samuel Grandsir (1')
1-1 Clinton Njie (11')
2-1 Benjamin Nivet (48')
2-2 Konstantinos Mitroglou (75')
2-3 Florian Thauvin (85')
Athugasemdir
banner
banner
banner