Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 15. apríl 2018 16:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sviss: Guðlaugur Victor og félagar unnið tvo af síðustu 12
Það gengur ekki vel hjá Guðlaugi.
Það gengur ekki vel hjá Guðlaugi.
Mynd: Getty Images
Herfilegt gengi Guðlaugs Victors Pálssonar og félaga hans í Zürich í Sviss heldur áfram.

Í dag þurfti liðið að sætta sig við 1-0 tap gegn ungu strákunum í Young Boys sem situr á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar.

Sigurmark Young Boys í dag, kom þegar 20 mínútur voru til leiksloka.

Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn á miðjunni hjá Zürich en hann er fyrirliði liðsins.

Gengi Zürich að undanförnu hefur verið hörmulegt. Liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu 12 deildarleikjum sínum. Zürich er í fimmta sæti deildarinnar með 37 stig úr 29 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner