Werder Bremen 1-1 RasenBallsport Leipzig
1-0 Niklas Moisander (28')
1-1 Ademola Lookman (50')
1-0 Niklas Moisander (28')
1-1 Ademola Lookman (50')
Werder Bremen tók á móti hinu umdeilda liði RB Leipzig í Bundesligunni í dag. Aron Jóhannsson var ekki í leikmannahóp heimaliðsins en hann hefur glímt við meiðsli á tímabilinu.
Heimamenn sigla lygnan í deildinni en gestirnir vissu að þeir gætu minnkað bilið á milli sín og Borussia Dortmund eftir að Dortmund tapaði gegn Schalke í dag.
Heimamenn byrjuðu þó betur og skoraði Niklas Moisander fyrir þá á 28.mínútu.
Ademola Lookman, lánsmaður frá Everton, skoraði sitt annað mark fyrir gestina þegar hann jafnaði leikinn á 50.mínútu.
Ekki var meira skorað en þetta getur reynst gestunum dýrkeypt í baráttunni um Meistaradeildarsæti en liðið er fjórum stigum á eftir Dortmund þegar fjórir leikir eru eftir.
Athugasemdir