Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 15. maí 2013 06:00
Elvar Geir Magnússon
AEK Aþena á leið niður í grísku C-deildina
AEK Aþena féll í fyrsta sinn niður í grísku B-deildina á liðnu tímabili. Félagið hefur nú tilkynnt að vegna mjög slæmrar fjárhagsstöðu sé óskað eftir gjaldþrotaskiptum.

AEK þarf því að byrja í C-deildinni en félagið hefur 28 sinnum orðið grískur meistari og 14 sinnum bikarmeistari.

Enginn Íslendingur er tengdur AEK í dag en Arnar Grétarsson er fyrrum leikmaður og yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.

Eiður Smári Guðjohnsen og Elfar Freyr Helgason eru þá meðal fyrrum leikmanna AEK.
Slapp
banner
banner