Didier Drogba og Emmanuel Eboue, leikmenn Galatasaray, urðu fyrir kynþáttaníð þegar stuðningsmenn Fenerbahce bauluðu á Fílabeinsstrendingana ásamt því að veifa bönunum að þeim í viðureign liðanna um helgina.
Fór það skiljanlega illa í Drogba sem ákvað að svara þeim fullum hálsi á samskiptasíðunni Facebook, daginn eftir leikinn.
Fór það skiljanlega illa í Drogba sem ákvað að svara þeim fullum hálsi á samskiptasíðunni Facebook, daginn eftir leikinn.
Minntist hann þar á afrek sín og furðaði sig hegðun þeirra, sérstaklega þar sem kamerúnski sóknarmaðurinn, Pierre Webo, skoraði bæði mörk Fenerbahce í 2-1 sigri, en hann er líkt og Drogba dökkur á hörund.
,,Þið kallið mig apa en þið grétuð þegar Chelsea vann Fenerbahce árið 2008, þið kallið mig apa en þið hoppuðuð um fyrir framan skjáinn þegar ég vann Meistaradeildina, þið kallið mig apa en þið urðuð reiðir þegar ég varð meistari með Galatasaray, og það sorglegasta er að þið kallið mig apa en gleymduð að þið höfðuð fagnað þegar apabróðir minn skoraði tvisvar....og þið kallið ykkur sanna stuðningsmenn??“ stóð á Facebook síðu Galatasaray.
Þetta var ekki eina atvikið sem skyggði á leikinn, en ungur stuðningsmaður Fenerbahce var stunginn til dauða á leið sinni heim eftir leikinn af stuðningsmönnum Galatasaray. Þess vegna ákvað Galatasaray að fresta því að fagna tyrkneska meistaratitlinum með stuðningsmönnum sínum.



