Klukkan 18:45 í kvöld verður flautað til úrslitaleik Evrópudeildarinnar á Amsterdam Arena í Hollandi. Portúgalska félagið Benfica mætir ríkjandi Meistaradeildarsigurvegurum í Chelsea.
Eden Hazard og John Terry eru á meiðslalistanum eftir 2-1 sigurinn gegn Aston Villa um síðustu helgi og taka þeir ekki þátt í leiknum. Þá er John Mikel Obi tæpur.
Eden Hazard og John Terry eru á meiðslalistanum eftir 2-1 sigurinn gegn Aston Villa um síðustu helgi og taka þeir ekki þátt í leiknum. Þá er John Mikel Obi tæpur.
Ramires og David Luiz, leikmenn Chelsea, eru báðir fyrrum leikmenn Benfica.
Benfica varð fyrir áfalli um síðustu helgi þegar liðið tapaði fyrir Porto en Porto skaust þar með upp í efsta sætið fyrir lokaumferð portúgölsku deildarinnar.
Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar:
18:45 Benfica - Chelsea (Amsterdam Arena)




