Þýskalandsmeistarar FC Bayern munu ekki reyna að fá Wayne Rooney frá Manchester United í sumar.
Rooney fór fram á sölu frá United fyrir skömmu í annað sinn á þremur árum. Er hann ósáttur með stöðu sína hjá liðinu.
Bayern er eitt þeirra liða sem hafa verið orðuð við Rooney, en Matthias Sammer, íþróttamálastjóri liðsins, gefur hinsvegar lítið út fyrir þann orðróm.
,,Ég veit ekki hvað Rooney gæti komið með í Bundesliguna," sagði Sammer.
,,Við höfum frábæra virðingu fyrir Rooney, en það hefur ekki verið neitt samband. Alls ekkert samband og það er ekki neitt framundan."



