Grant Holt, framherji Norwich City í ensku úrvalsdeildinni, gæti farið frá félaginu í sumar, en hann gaf það í skyn á dögunum.
Holt, sem er 32 ára gamall, er fyrirliði félagsins, en hann hefur verið valinn besti leikmaður liðsins síðustu þrjú ár.
Hlutverk hans gæti þá orðið minna í sumar er Ricky van Wolfswinkel kemur frá Sporting Lisbon.
,,Orðrómurinn er alltaf í gangi. Fólk er að tala um að fjölskyldan mín hafi flutt norður, en þetta var ákvörðun sem ég og konan mín tókum," sagði Holt.
,,Ég hef alltaf sagt að fjölskyldan er í fyrsta sæti og ég vil ekki fara með mína krakka út um allt land þar sem þau eru á þeim aldrei þar sem þau eru að byrja í skóla. Það hefur ekkert með minn knattspyrnuferil að gera."
,,Aðeins stjórinn og fólkið í stjórninni vita hvort ég verði hér áfram á næstu leiktíð. Ég er með minn samning og við skoðum svo málin eftir það," sagði hann að lokum.



