Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 15. maí 2013 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Pellegrini fær samning sínum við Malaga rift í sumar
Manuel Pellegrini, þjálfari Malaga á Spáni, fær samning sínum hjá félaginu rift í sumar, en spænskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær.

Pellegrini hefur gert afar góða hluti með Malaga, en liðið komst meðal annars í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu á þessari leiktíð.

Roberto Mancini var þá rekinn frá Manchester City á mánudag og í kjölfarið fóru orðrómar þess efni að Pellegrini yrði næstur á kreik.

Nú fullyrða spænskir fjölmiðlar að Pellegrini hafi komist að samkomulagi við Malaga um að rifta samning hans, en hann á eitt ár eftir.

Hann verður því frjáls ferða sinna í sumar og kemur líklega til með að taka við Manchester City og myndi hann þá taka Isco með sér til enska félagsins, sem hefur reynst Malaga afar mikilvægur.
Slapp
banner
banner
banner