Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, vill að liðið tryggi sér fjórða sæti deildarinnar næstu helgi.
Arsenal vann öruggan sigur á Wigan í gær, 4-1, og felldi liðið um leið Wigan niður um deild, en liðið varð enskur bikarmeistari á dögunum.
Arsenal situr í fjórða sætinu sem stendur þegar ein umferð er eftir, en Ramsey vill að liðið klári dæmið næstu helgi og tryggi sætið.
,,Við fengum mark snemma og þá byrjuðum við að panikka svolítið. Þeir sýndu svo öllum í hversu góðu formi þeir eru með því jafna, en við kláruðum þetta á endanum og náðu sigri sem er fullkomin leið til þess að enda tímabilið á Emirates," sagði Ramsey.
,,Við eigum einn leik eftir sem við þurfum að klára til þess að ná Meistaradeildarsæti, þetta er það sem við elskum að gera, það er að spila fótbolta. Það er pressa í hverjum einasta leik og það var ekkert öðruvísi í kvöld. Við urðum að vinna til þess að vera í bílsstjóra sætinu og okkur tókst það," sagði hann að lokum.


