Glæsilegar frammistöður Ronaldinho hjá Atletico Mineiro hafa ekki dugað honum til að tryggja sér sæti í brasilíska landsliðinu fyrir Álfukeppnina sem fram fer í næsta mánuði, 15-30 júní í Brasilíu.
Ronaldinho hefur sýnt magnaða takta með félagsliði sínu í ár og á stóran þátt í velgengni þess en þrátt fyrir það leit landsliðsþjálfari Brasilíu, Luis Felipe Scolari, framhjá honum þegar hann valdi hópinn fyrir Álfukeppnina.
Ronaldinho hefur sýnt magnaða takta með félagsliði sínu í ár og á stóran þátt í velgengni þess en þrátt fyrir það leit landsliðsþjálfari Brasilíu, Luis Felipe Scolari, framhjá honum þegar hann valdi hópinn fyrir Álfukeppnina.
Ronaldinho spilaði fyrir Brasilíu í síðasta mánuði gegn Chile en mistókst að heilla menn upp úr skónum og þurfti að þola baul frá áhorfendapöllum. Þá ákvað Scolari einnig að skilja Kaka (Real Madrid), Rafael (Man Utd) og Ramires (Chelsea) eftir heima.
Scolari ákvað að treysta frekar á yngri og spræka leikmenn, eins og Oscar (Chelsea), Lucas Moura (PSG) og Bernard (Atletico Mineiro), heldur en þá eldri og reyndari. Er þetta tækifæri fyrir þá til að sýna hvað í þeim býr fyrir HM í heimalandinu á næsta ári. Þá sagði Scolari að aðrir ættu ekki að gefa upp vonina um að vera með á stóru stundinni og halda áfram að sanna sig.
Hér að neðan má sjá hópinn í heild sinni en Brasilía er í A-riðli Álfukeppninnar ásamt Ítalíu, Japan og Mexíkó. Í B-riðli leika Spánn, Úrúgvæ, Nígería og Tahítí.
Markmenn: Julio Cesar (QPR), Diego Cavalieri (Fluminense), Jefferson (Botafogo).
Varnarmenn: Thiago Silva (PSG), Rever (Atletico Mineiro), David Luiz (Chelsea), Dante (Bayern München), Daniel Alves (Barcelona), Jean (Fluminense), Marcelo (Real Madrid), Luis Filipe (Atletico Madrid).
Miðjumenn: Fernando (Gremio), Hernanes (Lazio), Luiz Gustavo (Bayern München), Paulinho (Corinthians).
Sóknarmenn: Jadson (Sao Paulo), Oscar (Chelsea), Lucas Moura (PSG), Hulk (Zenit), Bernard (Atletico Mineiro), Leandro Damiao (Internacional), Fred (Fluminense), Neymar (Santos).





