Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 15. maí 2013 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Viktor Smári og Kristinn Björnsson í Njarðvík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvíkingar, sem leika í annarri deild, hafa styrkt sig meira fyrir komandi átök í sumar, en liðið hefur fengið tvo lánsmenn frá Keflavík. Þetta kemur fram á vef félagsins.

Liðið hefur fengið þá Viktor Smára Hafsteinsson og Kristinn Björnsson frá félögum þeirra í Keflavík.

Viktor Smári er 21 árs gamall, en hann hefur æft og spilað með Haukum í vetur. Hann á að baki 18 leiki með Keflavík í bæði deild og bikar.

Kristinn Björnsson þekkir nokkuð vel til í Njarðvík, en hann á 187 leiki að baki fyrir félagið, en þá á hann einn leik að baki með Keflvíkingum.

Þeir verða komnir með heimild er Njarðvík mætir Dalvík/Reynir á Njarðtaksvellinum á laugardag.
Slapp
banner
banner