Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 15. maí 2013 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Wenger: Leiðinlegt að sjá Wigan falla
Tilfinningar Arsene Wenger, stjóra Arsenal á Englandi, voru blendnar eftir sigur liðsins í gærkvöldi.

Arsenal vann Wigan með fjórum mörkum gegn einu og er þar með í bílsstjórasætinu um Meistaradeildarsætið fyrir síðustu umferðina, á meðan Wigan féll um leið, en liðið varð enskur bikarmeistari á dögunum.

Wenger var ánægður með sigurinn og stöðuna sem liðið er komið í, en var svekktur að sjá Wigan falla.

,,Ég vil óska Wigan til hamingju með bikarinn, en ég finn líka til með þeim. Liðið spilar frábæran fótbolta og það er sorglegt að sjá þá falla um deild," sagði Wenger.

,,Wigan er með frábært knattspyrnulið og með mjög skarpa leikmenn og það er mjög erfitt að skilja þetta, en svona er þetta stundum," sagði hann að lokum.
Slapp
banner