Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 15. júní 2017 22:25
Dagur Lárusson
Helgi Sig: Gerði þetta nákvæmlega eins og ég myndi gera þetta
Helgi var sáttur eftir leik.
Helgi var sáttur eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög sáttur, það er gott að koma til baka eftir slæman leik fyrir austan síðustu helgi," sagði Helgi Sig eftir 2-0 sigur sinna mann gegn Fram í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  0 Fram

Fylkir voru heilt yfir betri aðilinn í leiknum og sköpuðu sér mikið af færum í fyrri hálfleik en markið kom ekki strax og allt stefndi í 0-0 í hálfleik þegar Hákon skoraði í uppbótartíma með flottu marki. Helgi sagðist vera sáttur við fyrri hálfleikinn.

„Ég var mjög sáttur við fyrri hálfleikinn og það eina sem að vantaði var markið og það kom síðan þarna í lokin og í raun á besta tíma fyrir okkur."

Helgi var ánægður með Hákon í kvöld og sagði að afgreiðslan hans í markinu hafi verið eins og hann sjálfur myndi gera þetta

„Þetta var frábært mark, frábærlega gert hjá Hákoni og hann gerði þetta nákvæmlega eins og ég myndi gera þetta," sagði og brosti.

„Hann hefði getað skorað fleiri, en hann átti frábæran leik, eins og í raun allt liðið."

Eftir leikinn í kvöld er Fylkir komið í efsta sæti Inkasso-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner