Yngsti leikmaður íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi, Albert Guðmundsson er afmælisbarn dagsins. Hann heldur því upp á 21 árs afmælið sitt í Moskvu.
Albert er ekki sá eini í íslenska landsliðinu sem heldur upp á afmæli sitt á meðan á HM stendur því varnarmaðurinn, Ragnar Sigurðsson á afmæli 19. júní og þá átti Heimir Hallgrímsson afmæli í vikunni. Ef allt gengur vel og Ísland kemst uppúr riðli sínum þá verður Emil Hallfreðsson 34 ára í Rússlandi þann 29. júní.
Þá átti þjálfarinn, Heimir Hallgrímsson afmæli 10. júní síðastliðnum.
Af öðrum leikmönnum á HM má nefna að Mohamed Salah framherji Egypta heldur upp á 26 ára afmæli sitt í dag. Salah og félagar í Egyptalandi hefja leik gegn Úrúgvæ klukkan 12:00 í dag.
Þessi drengur fagnar afmæli sínu í dag, veislan er samt á morgun í Moskvu og öllum er boðið. #FyrirÍsland #WorldCup #ARG v #ISL pic.twitter.com/wQNLXt9Zxo
— Gummi Ben (@GummiBen) June 15, 2018
Athugasemdir