Heimir Hallgrímsson þjálfari íslenska landsliðsins var spurður að því á fréttamannafundi Íslands í dag í aðdraganda leiksins gegn Argentínu hvernig þeim liði að vera komið á HM og hvort þetta væri ekki kraftaverk.
Heimir Hallgrímsson tók nú ekki undir það.
„Ég lít ekki á þetta sem kraftaverk. Liðið hefur verið nokkuð stöðugt síðustu fjögur ár. Við erum í kringum 20. sætið á Fifa listanum og unnið góða sigra undanfarið."
„Við eigum skilið að vera hérna. Við lítum ekki á það sem kraftaverk að vera hér á lokakeppni HM," sagði Heimir.
Athugasemdir