Íslenska landsliðið mun leika í varabúningi sínum gegn Argentínu á HM á laugardag.
Þetta verður fyrsti leikur Íslands í hvíta varabúningnum.
Ísland verður í hvítum búningum bæði gegn Argentínu í fyrsta leik og gegn Nígeríu í öðrum leik. Argentína og Króatía leika einnig í varabúning í þessum tveimur leikjum.
Leikur Íslands og Argentínu hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma á morgun. Í dag er æfing og fréttamannafundur á keppnisvellinum í rússnesku höfuðborginni Moskvu.
Ísland - Argentína
Ísland
Markmenn: Rauðir
Útileikmenn: Hvítir
Argentína
Markmenn: Appelsínugulir
Útileikmenn: Svartir
Athugasemdir