Heimild: Vísir.is
Selfyssingurinn, Jón Daði Böðvarsson var í viðtali við Vísi í gær. Þar var hann spurður út í gjöf sem unnusta hans, María Ósk Skúladóttir gaf honum fyrir brottför til Rússlands. Svokölluð kveðjugjöf.
Þar hafði María útbúið bók þar sem vinir og fjölskyldumeðlimir höfðu skrifað falleg kveðjuorð fyrir mótið.
Jón Dagði segist hafa gluggað í bókina í frítíma og notið þess.
„Ég er ekki frá því að það féllu smá tár. Þetta var svo fallega skrifað hjá öllum. Þetta er örugglega besta gjöf sem kærastan hefur gefið mér," sagði Jón Daði við Vísismenn í gær.
Athugasemdir