Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 15. júní 2018 12:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Juventus hefur haft samband við umboðsmann Golovin
Mynd: Getty Images
Juventus hefur haft samband við umboðsmann Aleksandr Golovin, miðjumann CSKA Moskva og rússneska landsliðsins, samkvæmt ítalska blaðamanninum Gianluca Di Marzio.

Golovin spilaði frábærlega í sigri Rússlands á Sádí Arabíu í upphafsleik Heimsmeistaramótsins þar sem hann skoraði meðal annars frábært mark beint úr aukaspyrnu sem innsiglaði 5-0 sigur liðsins. Hann lagði auk þess upp tvö mörk.

Juventus er sagt mjög áhugasamt um að tryggja sér þennan 22 ára leikmann sem fyrst, þar sem félög líkt og Arsenal eru sögð áhugasöm.

Golovin er sagður hafa náð samkomulagi við Juventus um kaup og kjör sem gefur félaginu forskot í baráttunni gegn Arsenal og Manchester United. Hér að neðan má sjá tölfræði leikmannsins frá opnunarleik mótsins.





Athugasemdir
banner
banner
banner