Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 15. júní 2018 13:07
Elvar Geir Magnússon
Myndaveisla: Messi og félagar á síðustu æfingu fyrir Íslandsleikinn
Icelandair
Messi og félagar mættu á golfbíl á æfinguna.
Messi og félagar mættu á golfbíl á æfinguna.
Mynd: Getty Images
Það kemur engum á óvart að Lionel Messi hafi verið helsti skotspónn ljósmyndara á síðustu æfingu Argentínu fyrir leikinn gegn Íslandi. Æfingin var opin í örfáar mínútur fyrir ljósmyndara en áður hafði verið talið að hún yrði alveg lokuð.

Ekki var þó með nokkru móti hægt að sjá einhverjar vísbendingar um byrjunarliðið sem Jorge Sampaoli mun tefla fram en fyrir æfinguna sást hann spjalla við Ricardo Tapia, formann knattspyrnusambandsins. Tapia hélt fyrir munninn svo ekki væri möguleiki á varalestri.

Bæði Ísland og Argentína reyna eins og hægt er að halda spilunum þétt að sér en argentínska liðið ákvað að æfa ekki á keppnisvellinum í dag heldur frekar á æfingasvæði sínu. Argentína er með höfuðstöðvar í úthverfi Moskvu.

Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Argentínu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner