Jorge Sampaoli, þjálfari Argentínu, situr fyrir svörum á fréttamannafundi á Spartak leikvanginum nú í augnablikinu.
Fréttamaður frá Bangladesh átti fyrstu spurningu en hann var ósáttur við að sjá Lionel Messi, fyrirliða Argentínu, ekki á svæðinu.
Oftast mæta fyrirliðar á fréttamannafund daginn fyrir leik en hjá Argentínu var vinstri bakvörðurinn Nicolas Taglafico mættur í stað Messi.
Þetta var fréttamaðurinn frá Bangladesh afar ósáttur við en Messi mætti heldur ekki á fréttamannafund fyrir vináttuleik í Bangladesh árið 2011.

„Ég ákveð þetta ekki sjálfur. Það er ekki ég sem ákveð það. Þú ættir að spyrja einhvern annan að þessu en mig," sagði Sampaoli stuttorður þegar hann var spurður út í málið.
Sjá einnig:
Messi ekki á fréttamannafundinum - Lítið fyrir að tala
Athugasemdir