Fotbolti.net
15.07.14 - 12:00
Fótbolti.net

Lið umferða 1-11 í Pepsi-deild karla

Pétur Viðarsson og Kassim ,,the dream\" Doumbia eru báðir í liðinu.

Pétur Viðarsson og Kassim ,,the dream\" Doumbia eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keppni í Pepsi-deild karla er hálfnuð en 11. umferðin fór fram í gærkvöldi.

Hér að neðan má sjá úrvalslið umferða 1-11 að mati Fótbolta.net.


Róbert Örn Óskarsson (FH)
Hefur fengið langfæst mörk á sig í deildinni í sumar eða sex talsins.

Haukur Heiðar Hauksson (KR)
Besti leikmaður KR í sumar. Hans besta tímabil á ferlinum.

Kassim ,,the dream\" Doumbia (FH)
Besti maður mótsins hingað til að mati Fótbolta.net. Hefur verið eins og klettur í vörn FH.

Pétur Viðarsson (FH)
Pétur hefur leikið mjög vel við hlið Kassim í FH vörninni.

Magnús Þórir Matthíasson (Keflavík)
Magnús hefur leikið vel í nýrri stöðu í vinstri bakverðinum hjá Keflavík.

Igor Taskovic (Víkingur R.)
Taskovic hefur verið frábær á miðjunni hjá nýliðunum í sumar.

Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Einn allra besti leikmaður mótsins þrátt fyrir að hafa misst af byrjuninni vegna meiðsla. Kominn með fimm mörk og hefur lagt upp fleiri.

Elías Már Ómarsson (Keflavík)
Þessi ungi kantmaður hefur skotist skemmtilega fram á sjónarsviðið í liði Keflvíkinga.

Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Ólafur Karl er kominn með fimm mörk hjá Garðbæingum í sumar.

Jeppe Hansen (Stjarnan)
Danski framherjinn skoraði sex mörk í níu leikjum áður en hann fór aftur til heimalandsins.

Jonathan Glenn (ÍBV)
Eftir að hafa byrjað mótið illa hefur Glenn raðað inn mörkunum að undanförnu. Kominn með sex stykki.

Varamenn:
Ingvar Jónsson (Stjarnan)
Niclas Vemmelund (Stjarnan)
Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur)
Michael Præst (Stjarnan)
Gary Martin (KR)
Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
Atli Viðar Björnsson (FH)
Aron Elís Þrándarson.

Aron Elís Þrándarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Karl Finsen.

Ólafur Karl Finsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.