Athygli vekur að Kólumbíumaðurinn Juan Cuadrado var ekki valinn í leikmannahóp Fiorentina sem mætir Real Madrid í æfingaleik á morgun.
Framtíð Cuadrado hefur mikið verið í umræðunni en leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Manchester United og Barcelona.
Framtíð Cuadrado hefur mikið verið í umræðunni en leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Manchester United og Barcelona.
Daily Mail segir að þessi 26 ára leikmaður hafi ekki ferðast með Fiorentina í æfingaleikinn sem verður í Varsjá og gefur það sögusögnum um það að hann sé á förum byr undir báða vængi.
Cuadrado er vængmaður sem skorað hefur 20 mörk í 83 leikjum fyrir félag sitt en frammistaða hans með landsliði Kólumbíu á HM vakti athygli.
Athugasemdir