Heiðar Ægisson sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni en hann leikur með Stjörnunni í Pepsi-deild karla.
Heiðar er uppalinn í Garðabænum og hefur leikið sex leiki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar.
Heiðar er uppalinn í Garðabænum og hefur leikið sex leiki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar.
Fullt nafn: Heiðar Ægisson
Gælunafn sem þú þolir ekki: “sneiðar“ er ekki minn tebolli, Bödker á heiðurinn á því en hann er sem betur fer eini sem kallar mig þetta
Aldur: 18
Giftur/sambúð: lausu
Börn: því miður
Kvöldmatur í gær: Pastaréttur hjá mömmslu
Uppáhalds matsölustaður: Saffran í hfj stendur alltaf fyrir sínu þrátt fyrir leiðinlega staðsetningu en svo er Tokyo Sushi í miklu uppáhaldi.
Hvernig bíl áttu: Ég keyri um á silfurlituðum Ford Focus 2012
Besti sjónvarpsþáttur: Two and a half men þegar Charlie Sheen var uppá sitt besta
Uppáhalds hljómsveit: Coldplay
Uppáhalds skemmtistaður: Fermetrinn
Frægasti vinur þinn á Facebook: Jóhann Laxdal fær þann heiður
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Pizzan er að leggja af stað til þín. Kveðja Domino‘s Pizza.
Hefurðu tekið dýfu innan teigs: nei en ég veit hins vegar um einn sem leiðist ekki að dýfa sér, nefni engin nöfn.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: breiðablik
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Þeir eru allir ágætir
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Andri Björn Indriðason
Sætasti sigurinn: Vinna bikarinn 2-1 móti ÍA 2012 í 2.fl og vinna blika 4-2 um Íslandsmeistaratitilinn 2013 í 2.fl
Mestu vonbrigðin: að tapa
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Davíð Kristján Ólafsson, til að kenna mér honey nut dansinn
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Leyfa áfengi á leikjum , spila saman hafa gaman
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins: Kristján Flóki Finnbogason
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni: Björn Jónsson er ljónharður
Fallegasta knattspyrnukonan: Sara Björk
Besti íþróttalýsandinn: Gummi ben og Svali deila þessu með sér
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Jón Arnar Barðdal
Uppáhalds staður á Íslandi: Garðabærinn
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það var þegar Tómas Orri fékk rautt spjald fyrir að segja dómaranum að fara í klippingu. Dómarinn var sköllóttur.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: fyrsti mótsleikur var á móti Fylki í pepsi á þessu tímabili
Besta við að æfa fótbolta: að skora
Hvenær vaknarðu á daginn: Um 8-leytið þessa dagana
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Horfi mikið á NBA og svo á Stjörnuna í körfubolta og þá aðallega á minn mann Tomma Hilmars.
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik: Manchester United vs Bolton
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: rauðum CTR360
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: jarðfræði
Vandræðalegasta augnablik: að fá rautt spjald eftir leik fyrir kjaft
Skilaboð til Lars Lagerback: snapchat – heichetl
Viltu opinbera leyndarmál að lokum: Ég er með köngulóa fóbíu á hæsta stigi
Athugasemdir